Nokia 1680 classic - Notandahandbók Nokia 1680 classic

background image

Notandahandbók Nokia

1680 classic

9208048

Útgáfa 1

background image

LEYFISYFIRLÝSING

Hér með lýsir NOKIA CORPORATION því yfir að varan

RM-394 er í samræmi við grunnkröfur og aðrar

kröfur sem gerðar eru í tilskipun 1999/5/EC. Afrit af

Samræmisyfirlýsingunni má finna á http://

www.nokia.com/phones/declaration_of_conformity/.
© 2008 Nokia. Öll réttindi áskilin.
Nokia, Nokia Connecting People, og Navi eru vörumerki eða skrásett vörumerki

Nokia Corporation. Nokia tune er tónmerki Nokia Corporation. Önnur vöruheiti

eða heiti fyrirtækja sem nefnd eru hér geta verið vörumerki eða vöruheiti

viðkomandi eigenda.
Hvers konar afritun, yfirfærsla, dreifing eða varðveisla á hluta skjals þessa eða

skjalsins alls er óheimil nema að fyrir fram fengnu skriflegu samþykki Nokia.
US Patent No 5818437 and other pending patents. T9 text input software

Includes RSA BSAFE cryptographic or security protocol software from

RSA Security.

Java and all Java-based marks are trademarks or registered

trademarks of Sun Microsystems, Inc.
This product is licensed under the MPEG-4 Visual Patent Portfolio License (i) for

personal and noncommercial use in connection with information which has

been encoded in compliance with the MPEG-4 Visual Standard by a consumer

Copyright © 1997-2008. Tegic Communications, Inc. All rights reserved.

background image

engaged in a personal and noncommercial activity and (ii) for use in

connection with MPEG-4 video provided by a licensed video provider. No

license is granted or shall be implied for any other use. Additional information,

including that related to promotional, internal, and commercial uses, may be

obtained from MPEG LA, LLC. See http://www.mpegla.com.
Þessi vara er háð leyfinu MPEG-4 Visual Patent Portfolio License (i) til

einkanotkunar og án viðskiptatilgangs í tengslum við upplýsingar sem hafa

verið kótaðar samkvæmt staðlinum MPEG-4 Visual Standard af neytanda í

persónulegum tilgangi og án viðskiptatilgangs og (ii) til notkunar í tengslum

við MPEG-4 hreyfimynd sem fengin er hjá hreyfimyndaveitu með leyfi. Ekkert

leyfi er veitt eða undirskilið til neinnar annarrar notkunar.

Viðbótarupplýsingar, svo sem notkun í auglýsingum, innan fyrirtækis og í

viðskiptum, má fá hjá MPEG LA, LLC. Sjá http://www.mpegla.com.
Nokia framfylgir stefnu sem felur í sér stöðuga þróun. Nokia áskilur sér rétt til

að gera breytingar og úrbætur á hvers konar vöru sem getið er í þessu skjali

án undangenginnar tilkynningar.
AÐ ÞVÍ MARKI SEM VIÐEIGANDI LÖG LEYFA SKAL NOKIA, STARFSMENN ÞESS EÐA

SAMSTARFSAÐILAR UNDIR ENGUM KRINGUMSTÆÐUM BERA SKAÐABÓTAÁBYRGÐ

VEGNA TAPS Á GÖGNUM, TEKJUTJÓNI EÐA Á NEINU SÉRSTÖKU, TILVILJANAKENNDU,

AFLEIDDU EÐA ÓBEINU TJÓNI HVERNIG SEM ÞAÐ VILL TIL.
INNTAK ÞESSA SKJALS ER AFHENT „EINS OG ÞAÐ KEMUR FYRIR“. UMFRAM ÞAÐ, ER

LÖG ÁSKILJA, ER ENGIN ÁBYRGÐ VEITT, HVORKI BERUM ORÐUM EÐA UNDIRSKILIN,

Á NÁKVÆMNI, ÁREIÐANLEIKA EÐA INNTAKI ÞESSA SKJALS, Á ÞAÐ MEÐAL ANNARS,

EN EKKI EINGÖNGU, VIÐ UM SÖLUHÆFNI EÐA ÁBYRGÐ Á AÐ VARAN HENTL

TILTEKINNI NOTKUN. NOKIA ÁSKILUR SÉR RÉTT TIL AÐ ENDURSKOÐA SKJALIÐ EÐA

DRAGA ÞAÐ TILBAKA HVENÆR SEM ER ÁN UNDANGENGINNAR TILKYNNINGAR.
Framboð á tilteknum vörum, forritum og þjónustu fyrir þessar vörur getur

verið breytilegt eftir svæðum. Kannaðu það, ásamt tungumálavalkostum, hjá

Nokia söluaðila þínum.

background image

Útflutningstakmarkanir

Tæki þetta kann að innihalda vörur, tækni eða hugbúnað sem lýtur

útflutningslögum og reglugerðum í Bandaríkjunum og öðrum löndum.

Breytingar á flutningsleiðum sem ekki samræmast lögum eru óheimilar.
Þau forrit frá þriðju aðilum sem finna má í tækinu kunna að hafa verið búin til

og vera í eigu aðila eða fyrirtækja sem ekki tengjast Nokia. Nokia á ekki

höfundarréttindi eða hugverkaréttindi að þessum forritum þriðju aðila. Nokia

tekur því hvorki ábyrgð á aðstoð við notendur, virkni þessara forrita eða þeim

upplýsingum sem fylgja forritunum eða efninu. Nokia veitir enga ábyrgð á

þessum forritum þriðju aðila.
MEÐ NOTKUN SINNI VIÐURKENNIR NOTANDINN AÐ FORRITIN ERU AFHENT EINS

OG ÞAU KOMA FYRIR ÁN ÞESS AÐ NOKKUR ÁBYRGÐ SÉ VEITT, BERUM ORÐUM EÐA

ÓBEINT, AÐ ÞVÍ MARKI SEM HEIMILT ER Í VIÐKOMANDI LÖGUM. NOTANDINN

VIÐURKENNIR JAFNFRAMT AÐ HVORKI NOKIA NÉ TENGD FÉLÖG VEITA NOKKURS

KONAR FYRIRSVAR EÐA ÁBYRGÐ, BERUM ORÐUM EÐA ÓBEINT, ÞAR Á MEÐAL EN

EKKI EINGÖNGU ÁBYRGÐ Á EIGNARRÉTTI, SÖLUHÆFNI EÐA HÆFNI TIL TILTEKINNAR

NOTKUNAR, EÐA ÞVÍ AÐ FORRITIN BRJÓTI EKKI GEGN EINKARÉTTI,

HÖFUNDARRÉTTI, VÖRUMERKJARÉTTI EÐA ÖÐRUM RÉTTINDUM ÞRIÐJA AÐILA.
Tilkynning frá FCC/INDUSTRY CANADA

Tækið getur valdið truflunum í sjónvarpi og útvarpi (t.d. þegar síminn er

notaður nálægt viðtæki). FCC eða Industry Canada geta krafist þess að þú

hættir að nota símann þinn ef ekki er hægt að koma í veg fyrir slíkar truflanir.

Hafðu samband við þjónustuaðila þinn ef þú þarfnast aðstoðar. Þetta tæki

fellur undir grein 15 í reglugerðunum FCC. Notkun þess er háð eftirfarandi

tveimur skilyrðum: (1) Tækið má ekki valda skaðlegum truflunum; og (2) Tækið

verður að taka við öllum truflunum sem það verður fyrir, þ.m.t. truflunum sem

geta valdið óæskilegri virkni þess. Sérhverjar breytingar sem Nokia hefur ekki

samþykkt geta ógilt heimild notandans til notkunar búnaðarins.
9208048/Útgáfa 1