Nokia 1680 classic - Umhirða og viðhald

background image

Umhirða og viðhald

Í tækinu fer saman frábær hönnun og flókin tækni sem fara

þarf gætilega með. Eftirfarandi leiðbeiningar hjálpa til við

að halda tækinu í ábyrgð.
● Halda skal tækinu þurru. Úrkoma, raki og hvers kyns

vökvar geta innihaldið steinefni sem tæra rafrásirnar. Ef

tækið blotnar skal fjarlægja rafhlöðuna og leyfa því að

þorna alveg áður en rafhlaða er sett í aftur.

● Ekki skal nota tækið á rykugum og óhreinum stöðum né

geyma það þar. Færanlegu hlutirnir og rafrænir hlutar

þess geta skemmst.

● Ekki skal geyma tækið á heitum stað. Hátt hitastig getur

dregið úr endingu rafeindatækja, skemmt rafhlöður og

undið eða brætt sum plastefni.

● Ekki skal geyma tækið á köldum stað. Þegar tækið hitnar

upp að eðlilegu hitastigi getur raki myndast innan í því

og hann getur skemmt rafrásaspjöld.

● Ekki skal reyna að opna símann öðruvísi en tilgreint er

í þessari handbók.

● Tækinu skal ekki henda, ekki skal banka í það eða hrista

það. Óvarleg meðferð getur skemmt innri rafrásarspjöld

og fíngerðan búnað.

● Ekki skal nota sterk efni, leysiefni til hreingerninga eða

sterk hreinsiefni til þess að þrífa tækið.

© 2008 Nokia. Öll réttindi áskilin.

49

background image

● Ekki skal mála tækið. Málningin getur fest hreyfanlega

hluti tækisins og komið í veg fyrir að þeir vinni rétt.

● Nota skal mjúkan, hreinan, þurran klút til að hreinsa

linsur, líkt og myndavélar-, fjarlægðarnema- og

ljósnemalinsur.

● Aðeins skal nota loftnetið sem fylgir með símanum eða

samþykkt varaloftnet. Ósamþykkt loftnet, breytingar á

þeim eða viðbætur, gætu skemmt tækið og kunna að

brjóta í bága við ákvæði laga og reglugerða um

senditæki.

● Nota skal hleðslutæki innandyra.
● Alltaf skal taka öryggisafrit af gögnum sem ætlunin er

að halda, t.d. tengiliðum og dagbókaratriðum.

● Hægt er að endurstilla tækið af og til og tryggja þannig

hámarksafköst með því að slökkva á tækinu og fjarlægja

rafhlöðu þess.

Þessar ábendingar eiga jafnt við um tækið, rafhlöðuna,

hleðslutækið eða aðra aukahluti. Ef tæki vinnur ekki rétt

skal fara með það til næsta viðurkennda þjónustuaðila til

lagfæringar.