Nokia 1680 classic - Hleðsla og afhleðsla

background image

SIM-þjónusta

© 2008 Nokia. Öll réttindi áskilin.

44

background image

vera nauðsynlegt að tengja hleðslutækið og aftengja það

síðan og tengja aftur til að hefja hleðsluna.
Taka skal hleðslutækið úr sambandi við

rafmagnsinnstungu og tækið þegar það er ekki í notkun.

Ekki má hafa fullhlaðna rafhlöðnu í sambandi við

hleðslutæki þar sem ofhleðsla getur stytt líftíma hennar.

Fullhlaðin rafhlaða tapar hleðslunni smátt og smátt ef hún

er ekki í notkun.
Ef rafhlaðan er alveg tóm geta liðið nokkrar mínútur þar til

hleðsluvísirinn birtist á skjánum eða þar til hægt er að

hringja.
Aðeins skal nota rafhlöðuna til þess sem hún er ætluð.

Aldrei skal nota skemmt hleðslutæki eða rafhlöðu.
Gæta skal þess að valda ekki skammhlaupi í rafhlöðunni.

Skammhlaup getur orðið fyrir slysni þegar málmhlutur, svo

sem mynt, bréfaklemma eða penni veldur beinni tengingu

milli + og - skautanna á rafhlöðunni. (Þau líta út eins og

málmrendur á rafhlöðunni.) Til dæmis getur þetta gerst

þegar vararafhlaða er höfð í vasa eða tösku. Skammhlaup

milli skautanna getur valdið skemmdum á rafhlöðunni eða

hlutnum sem veldur tengingunni.
Ef rafhlaðan er skilin eftir í miklum hitum eða kuldum, til

dæmis í lokuðum bíl að sumar- eða vetrarlagi, dregur það

úr afkastagetu hennar og endingu. Æskilegast er að

rafhlaðan sé alltaf höfð í hita á bilinu frá 15°C að 25°C (frá

59°F að 77°F). Tæki með of heitri eða of kaldri rafhlöðu

Upplýsingar um rafhlöðu

© 2008 Nokia. Öll réttindi áskilin.

45

background image

getur orðið óvirkt um tíma, þó svo að rafhlaðan sé

fullhlaðin. Einkum hefur mikið frost takmarkandi áhrif á

rafhlöður.
Ekki má fleygja rafhlöðum í eld þar sem þær geta sprungið.

Rafhlöður geta einnig sprungið ef þær skemmast. Farga

skal rafhlöðum í samræmi við staðbundin lög og

reglugerðir. Skila skal þeim í endurvinnslu þegar mögulegt

er. Ekki skal fleygja þeim með heimilisúrgangi.
Ekki skal taka sundur eða tæta rafhlöður. Ef rafhlaða lekur

má vökvi hennar ekki komast í snertingu við húð eða augu.

Ef slíkt kemur fyrir skal skola húð eða augu umsvifalaust

með vatni, eða leita til læknis.