Nokia 1680 classic - Ökutæki

background image

Ökutæki

Útvarpsbylgjur kunna að hafa áhrif á rafeindakerfi í

vélknúnum ökutækjum, séu þau ekki rétt upp sett eða ekki

nægilega varin, svo sem rafeindastýrða eldsneytisgjöf,

rafeindastýrð hemlakerfi (með læsivörn), rafeindastýrð

Viðbótaröryggisupplýsingar

© 2008 Nokia. Öll réttindi áskilin.

53

background image

hraðakerfi og loftpúðakerfi. Nánari upplýsingar má fá hjá

framleiðanda bílsins eða búnaðarins sem bætt hefur verið

við eða fulltrúa hans.
Aðeins á að fela fagmönnum að gera við tækið eða setja

tækið upp í ökutæki. Gölluð uppsetning eða viðgerð kann

að valda hættu og ógilda hvers kyns ábyrgð sem kann að

vera á tækinu. Ganga skal reglulega úr skugga um að allur

þráðlaus tækjabúnaður í ökutækinu sé rétt uppsettur og

vinni rétt. Ekki má geyma eða flytja eldfima vökva,

lofttegundir eða sprengifim efni í sama rými og tækið,

hluta úr því eða aukahluti með því. Ef ökutæki er búið

loftpúða skal hafa hugfast að loftpúðar blásast út af

miklum krafti. Ekki má setja hluti, þar með talinn uppsettan

eða færanlegan þráðlausan búnað, á svæðið yfir

loftpúðanum eða á útþenslusvið loftpúðans. Ef þráðlaus

búnaður í bíl er illa settur upp og loftpúðinn þenst út getur

slíkt orsakað alvarleg meiðsl.
Notkun tækisins meðan á flugi stendur er bönnuð. Slökkva

skal á tækinu áður en gengið er um borð í flugvél. Notkun

þráðlausra fjarskiptatækja í flugvél getur skapað hættu við

stjórn flugvélarinnar, rofið þráðlaust símasamband og

verið ólöglegt.