Texta- eða margmiðlunarskilaboð búin til
1. Veldu Valmynd > Skilaboð > Búa til skilaboð >
Skilaboð.
2. Til að bæta við viðtakendum flettirðu að reitnum Til:
og slærð inn númer viðtakanda eða tölvupóstfang, eða
velur Bæta við viðtakendur úr valkostum. Veldu
Valkost. til að bæta við viðtakendum og efni og til að
stilla sendingarvalkosti.
3. Flettu að reitnum Texti: og sláðu inn texta skilaboða.
4. Til að tengja efni við skilaboð flettirðu að
viðhengisslánni neðst á skjánum og velur rétta efnið.
5. Ýttu á Senda til að senda skilaboðin.
Skilaboðategundin kemur fram efst á skjánum og breytist
sjálfkrafa eftir efni skilaboða.
Þjónustuveitur hafa mismunandi gjöld eftir tegund
skilaboða. Fáðu nánari upplýsingar hjá þjónustuveitu.